|
31.07.2008
Í dag fórum við með hana Kveikju Nett-Frumu (Sprúttu) í sónar og við erum svo ánægðar að segja frá því að það sáust hvolpar í henni =) Hún á að gjóta í kringum 8 september, ég setti svo sónarmyndirnar hennar inná hvolpasíðuna.
28.06.2008
Hann Leiru Sámur okkar fór í mjaðmamyndatöku og við erum stolt að segja að hann er HD:FRI-A ! =) við erum rosalega ánægð með littla strákinn okkar !
23.06.2007
Við fórum á hundasýningu hjá HRFI í dag og það gekk bara vel.
Ísrima Snotra fékk MJÖG góða dóma en 2 einkun vegna þess að dómaranum fannst hún vera of feit.
Kveikja Nett-Fruma fékk 1 einkun og 1 sæti í unghundaflokk og mjög góða dóma.
Leiru Sámur fékk MJÖG góða dóma en 2 einkun vegna þess að dómaranum fannst hann vera eðeins of mjór en það er ekki skrítið því hann er á þessum aldri ný orðin 1 árs, í hárlosi og nýkomin úr einangrun.
Svo nú þarf bara að fá Snotru gömlu í betra form og fita Sám littla fyrir næstu sýningu hahaha (";)
27.04.2007
Leiru Sámur fór í sína fyrstu augnskoðun í dag og var FRI.
22.10.2006

Kveikja Nett Fruma "Sprútta" útskrifaðist af hundafimi námskeiðinu í dag! Hún er búin að læra allar hindranir og getur hlaupið brautina laus núna á svaka hraða =) svo núna er það bara að æfa og æfa til að geta kannski tekið þátt í hundafimi móti á næsta ári!
15.10.2006
Fórum á littla sýningu í Örebro þar sem Sprútta og Sámur voru bæði sýnd. Kveikja Nett Fruma "Sprútta" fékk mjög góða dóma og fannst þetta bara mjög gaman að sýna sig og hún fékk Heiðursverðlaun og varð BIR (Besti hundur tegundar í opnum flokk)! og fór svo að keppa í tegundarhóp 5, og þar varð hún BIG 4 ( 4 sæti í tegundarhóp 5). Hann Leiru Sámur fékk mjög góða dóma líka og hagaði sér mjög vel eins og vanalega og fékk heiðursverðlaun og varð BIR hvolpur ( Besti hundur tegundar í hvolpaflokk)!
01.09.2006
Jæja núna erum við búnar að skrá á námskeið Hann Sámur littli fer á hvolpanámskeið sem byrjar núna 9 sept. og hann fór með okkur niðrí klúbb að skrá og fékk mikla athygli og honum fannst það alls ekki leiðinlegt haha svo varð Kveikja Nett-Fruma skráð á Aktivering námskeið þar sem hún mun fara í smá hlíðni, spor og svo að spora/leita af fólki og svo þurfum við að bíða í einhverjar vikur um svar hvort það sé pláss á hundafimis námskeiðinu hjá klúbbnum til að fara með hana í hundafimi :).
20.08.2006
Aftur í dag var vaknað snemma og farið á sýningu í öðrum bæ með Kveikju Nett-Frumu og í dag gekk rosalega vel og hún fékk 1 eink. 1 sæti. Besti unghundur tegundar og fékk heiðursverðlaun ! og frábæra dóma ! Hún sýndi sig vel og fannst algjört æði að fá að fara svona ein með okkur í smá "ferðalag"
19.08.2006
Í dag fórum við á sýningu með Kveikju Nett-Frumu (13 mánaða)og henni gekk ROSALEGA vel í dag og var sýnd í unghundaflokki. Hún fékk 1 eink. 1 sæti. Besti unghundur tegundar, CK, og fór svo uppí opin keppnisflokk á móti mikið eldri tíkum og varð í 3 sæti og fékk sitt fyrsta CERT (cac) !! Hún fékk frábæra dómara og sýndi sig rosalega vel littla stelpan okkar :) Erum svo stolt af henni!
18.08.2006
Við fluttum í nýjan bæ hérna í Svíþjóð í júlí og það tók rosalegan tíma að fá netið tengt en núna er það loksins komið og maður getur uppfært síðuna og auðvita verðum við að láta vita af nýja fjölskyldumeðliminum honum Leiru Sámi ! Hann flaug út með Hrefnu núna í júlí og hann er bara æðislegur :) Rosalega taugasterkur hvolpur erum svo ánægðar með hann Sám littla! Takk fyrir yndislegan hvolp Ninna !
15.04.2006
Við fórum á hundasýninguna "Lilla Stockholm" með Kveikju Nett-Frumu og hún var í unghundaflokki ( 9 mánaða) og hún fékk 1 eink. 1 sæti og heiðursverðlaun og æðislega dóma :)
16.02.2006
Kveikja Nett-Fruma byrjaði á Hlíðni 1 námskeiði og er sjarmatröll hópsins :) Gekk rosa vel þótt hún hafi verið að lóða í fyrsta sinn og svo mikið af nýjum hundum og fólki sem hún auðvita elskar !
07.01.2006
Kveikja Nett-Fruma fór á 2 sýninguna sína í Gautaborg og varð besti íslenski tíkar hvolpur sýningar og svo 2 besti ísl. hvolpur sýningar :D ! erum svo stolar af littlu stelpuni okkar !!
05.01.2006
Kveikja Nett-Fruma fór á fyrstu sýninguna sína í Gautaborg og var sýnd í hvolpaflokk og varð 2 besti tíkarhvolpur !
16.11.2005
Kveikja Nett-Fruma útskrifaðir úr Klicker hvolpanámskeiði með góðan árangur :)
27.10.2005
Hobbi er útskrifaður úr hlíðni 1 námskeiðinu með góðar einkanir :)!
|